Fyrir þreytta foreldra sem vilja góðan svefn
til langs tíma litið

 

Ert þú tilbúin að öðlast þá þekkingu og fá þann stuðning sem þú þarft til að hjálpa barninu þínu að sofa vel?

Á þann hátt sem þér líður vel með, svo að öll fjölskyldan geti farið að vakna úthvíld á morgnanna.

 

Blandaðu saman þekkingu á svefni barna við þitt innsæi, til að hjálpa barninu þínu að sofa vel til langs tíma litið, svo að þú getir:

✔️ Upplifað sjálfstraust þegar kemur að svefninum

✔️ Fengið þína andlegu og líkamlegu orku til baka

✔️ Sinnt börnunum, heimilinu, félagslífinu, sambandinu, heilsunni eða vinnunni á þann hátt sem þú vilt gera það.

 

Já takk! Ég er með

Hljómar þetta eins og þú?

 

 ✗ Þú manst ekki hvenær þú svafst síðast heila nótt.

✗ Þú ert hætt að telja hvað barnið vaknaði oft í nótt.

✗ Þú eyðir öllu kvöldinu í að reyna að koma barninu í svefn.

✗ Þú ert orðin þreytt á því að vakna þreytt og ósofin á morgnanna.

✗ Þér finnst varla taka því að leggja barnið í lúr því það vaknar svo fljótt aftur.

✗ Þú þráir góða rútínu yfir daginn fyrir barnið þitt.

✗ Þú vilt hjálpa barninu að sofa betur en veist ekki hvernig best er að gera það.

✗ Þú ert ringluð af misvísandi upplýsingum á netinu og á samfélagsmiðlum.

Hvað af þessu værir þú mest til í: 

 

✓ Barnið sefur alla nóttina um leið og það hefur aldur og þroska til.

✓ Þú kyssir og knúsar barnið góða nótt og það fer að sofa.

 Þú vaknar úthvíld á morgnanna og getur verið það foreldri sem þú vilt vera.

✓ Barnið er í góðri dagrútínu sem styður við góðan nætursvefn.

 Þú veist hvenær barnið tekur lúra og hversu lengi það mun líklega sofa.

Þú veist hvert þú getur leitað til að fá svör við þínum svefn spurningum.

 Þú ert partur af samfélagi foreldra sem skilja þig.

Til í þetta

Ef þetta hljómar vel ertu á réttum stað!

Ég kynni til leiks Virðingarríka Svefnklúbbinn

 

Staður fyrir foreldra ungra barna til að öðlast þá þekkingu og fá þann stuðning sem þeir þurfa til að hjálpa barninu sínu að sofa vel, á þann hátt sem þeim líður vel með, svo að öll fjölskyldan geti farið að vakna úthvíld á morgnanna.

Já takk!

 

Af hverju talar fólk svona vel um Virðingarríka Svefnklúbbinn?

 

 

“Það eykur bara tengslin að sofa báðar betur”

“Hún sofnar oftast sjálf í eigin rúmi, ekki á brjósti sem þýðir aukið frelsi því nú getur hver sem er svæft. Daglúrar hafa lengst, meiri ró yfir barni og mömmu, betri tengsl og mamman upplifir meiri stjórn á öllu og vanmættið mun minna. 

Hún sefur betur og svo margt sem ég skil betur, tímasetningar á vöku og annað. Hélt að það yrði erfiðara fyrir okkur að sofa aðskildar en það eykur bara tengslin að sofa báðar betur.”

- Nafnlaus 7 mánaða

“Barnið er mun hamingjusamara á daginn”

“(VS) gaf mér sjálfstraust til þess að gera það sem er best fyrir alla. Barnið er mun hamingjusamara á daginn eftir að það komst rútína á svefninn og mér líður mun betur að vita hvað ég þarf að gera til þess að hjálpa því að sofa. Mér fannst frábært að geta valið mér aðferðir út frá mínum gildum/uppeldisaðferðum og persónueinkennum barnsins míns. Einnig fannst mér frábært að hafa hópsímtöl á zoom reglulega til þess að halda manni við efnið, fá ráð og heyra reynslusögur frá öðrum.”

- Nafnlaus 5 mánaða

Hvað er innifalið í 

Virðingarríka Svefnklúbbnum?

 

  • Tveggja ára aðgangur að Virðingarríkum svefnlausnum - námskeiði í formi myndbanda, sem þú getur farið í gegnum á þínum hraða, eins oft og þú vilt. Það inniheldur allt sem þú þarft að vita til að geta hjálpað barninu þínu að sofa vel.
    • Skref fyrir skref leiðbeiningar í átt að góðum svefni.
      • Vinnubækur til að fylla út þar sem við á.
      • "Hvað ef..." kaflar þar sem við á.
      • Fjórar mismunandi svefnþjálfunar aðferðir til að velja úr (ekkert cry it out hér)
      • Hjálp við að velja aðferð sem hentar persónueinkennum barnsins þíns, þínum gildum í foreldrahlutverkinu og núverandi aðstæðum.
    • Svefn fjölbura.
    • Lausn við sérstökum vandamálum
      • Vaknar snemma
      • Tíðar næturvaknanir.
  • Aðgangur að Zoom hópsímtölum í hverri viku í 6 vikur, þar sem þú getur fengið stuðning og svör við þínum spurningum.
  • Aðgangur að lokuðu samfélagi foreldra á sömu vegferð í 6 vikur, þar sem þú getur spurt spurninga allan sólarhringinn og fengið stuðning.
    • Þú ræður hvenær þetta 6 vikna stuðnings tímabil byrjar. Þarf ekki að byrja strax eftir kaup.
    • Ef þú vilt frekar eitt 30 mín einn á einn símtal í stað sex hópsímtala og samfélags, er það ekkert mál.
Já takk!

Hver er Hafdís?

 

Ég er hjúkrunarfræðingur, ljósmóðir, faggildur svefnráðgjafi barna og móðir fjögurra barna. 

 

Ástríðan mín hefur alltaf legið í barneignarferlinu, sem unglingur var ég ákveðin í því að verða ljósmóðir, það kom aldrei neitt annað til greina. 

 

Eftir að ég eignaðist börn komst ég að því hvað svefninn verður stór partur af lífi manns og hvað hann hefur mikil áhrif á andlega og líkamlega líðan. Eftir að hafa svo gott sem misst vitið af svefnleysi kviknaði ástríðan mín á þessu viðfangsefni og hún hefur bara aukist síðan. 

 

Ég lifi í fyrsta lagi fyrir börnin mín og fjölskyldu og í öðru lagi fyrir að hjálpa öðrum foreldrum og börnum þeirra að fá svefninn sinn til baka, svo að fjölskyldan geti fúnkerað eðlilega og allir hafi þá andlegu og líkamlegu orku sem þeir þurfa.

 

Hvaða árangur eru meðlimir VS að sjá?

Þetta var allt gert með góðri samvisku

“Við settum hann strax í dagrútínuna samkvæmt plani. Mér fannst það skipta miklu máli og tel ég að það hafi átt stóran þátt í þessu.

…allt ferlið við þetta var svo þægilegt og ánægjulegt, það var gaman að fagna litlu sigrunum á leiðinni og allt þetta var gert með góðri samvisku og án mikils gráturs… allt eitthvað svo eðlilegt með góðum leiðbeiningum… nú fjórum mánuðum seinna sofnar hann alveg sjálfur og sefur alla nóttina… og ég bara hætti ekki að dásama þetta námskeið”

- Nafnlaus 10 mánaða

Ég var komin í þrot af svefnleysi

Hún var ekki í neinni rútínu, fór seint að sofa og lúrar voru óreglulegir. Núna er svefninn orðin mun betri, hún fer að sofa á sama tíma öll kvöld og vaknar á sama tíma á morgnanna (+/- 15-30 mín), lúrar eru á sama tíma á daginn og orðnir lengri, voru alltaf 25-35 mín en núna eru þeir 1 klst + 1,5 klst.

Ég var eiginlega komin í þrot af svefnleysi en staðan er önnur núna. Ég er mun jákvæðari gagnvart svefntíma. Hann er ekki að valda kvíða lengur heldur eigum við notalega stund fyrir svefninn.

- Nafnlaus 8 mánaða

VS er KLÁRLEGA fyrir þig ef:

 

Þú vilt fá tæki og tól til að bæta svefninn eða styðja við góðan svefn 

Þú vilt ráð sem gefa þér leyfi til að hlusta á þitt eigið innsæi

Þú vilt bæta svefninn á þann hátt sem hentar þér og þínu barni

Þú vilt ekki að “mömmuhjartað” þurfi að þjást til að fá góðan svefn

 Þú ert tilbúin til að leggja vinnu í að fá loksins góðan svefn

Þú ert tilbúin að sækja og þiggja þann stuðning sem þú þarft 

VS er EKKI fyrir þig ef:

 

 Barnið þitt er vel yfir 2 ára eða vel undir 4 mánaða

Þú vilt fylgja ströngum reglum/svefnþjálfunaraðferðum til að bæta svefninn

Þú ert að leita að “quick fix-i”/einni töfralausn sem hentar öllum börnum

Þú ert ekk tilbúin til að leggja á þig neina vinnu til að bæta svefninn

Tilbúin að byrja?

Virðingarríki Svefnklúbburinn

34.900 kr.

  • 2 ára aðgangur að netnámskeiðinu: Virðingarríkar Svefnlausnir
  • 6 vikna aðgangur að: Vikuleg hópsímtöl á Zoom
  • 6 vikna aðgangur að: Samfélag foreldra á sömu vegferð
  • Allt aðgengilegt á einum stað

Virðingarríkar svefnlausnir

24.900

  • 2 ára aðgangur að netnámskeiðinu: Virðingarríkar Svefnlausnir

Algengar spurningar